Um 360 manns var sagt upp í hópuppsögnum í júní, þar af 270 manns hjá einu stóru verktakafyrirtæki í byggingariðnaði.

Þetta kemur fram á vef Vinnumálastofnunar í dag en alls bárust stofnuninni fjórar tilkynningar um hópuppsagnir í júní.

Þá kemur fram að önnur hópuppsögn hafi borist að auki úr byggingariðnaði og því er um 80% hópuppsagna að þessu sinni úr þeirri atvinnugrein, ein hópuppsögn barst úr iðnaðarstarfsemi og ein úr flutningastarfsemi. Þessar hópuppsagnir koma til framkvæmda á tímabilinu ágúst og fram í desember.

Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.