Vöruinnflutningur í mars reyndist vera í kringum 33,2 milljarðar króna samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum um innheimtu virðisaukaskatts. Þetta er töluverð aukning milli mánaða en í febrúar var innflutningur um 22 milljarðar króna. Ef tölurnar reynast réttar er staðvirt aukning milli ára 36,3% að því er kemur fram í vefriti fjármálaráðuneytisins.

Ef horft er til tólf mánaða breytingar þriggja mánaða staððvirts meðaltals er aukningin á svipuðu róli, eða 36,4%.

Lækkun á gengi krónunnar átti sinn þátt í snarpri hækkun innflutningsverðmætis milli mánnaða en krónan veiktist um 9% í mars. Það þýðir að innflutnningur verður dýrari en jafnframt hækka útflutningstekjur. Gera má ráð fyrir að það taki nokkra mánuði fyrir gengislækkunina að hafa áhrif á magnstærðir innflutnings en jafnan eru neysluvörur og bifreiðar sérlega næmar fyrir gengissveiflum og má því vænta minni aukningar innflutnings í þeim liðum á næstu mánuðum.

Annar mikilvægur þáttur sem útskýrir sveiflu milli mánaða var aukning í innflutningi á eldsneyti en sá liður er afar sveiflukenndur milli mánaða. Verðmæti eldsneytisinnflutnings var mjög mikið í mars og koma þar saman gengislækkun og hækkandi eldsneytisverð á heimsmörkuðum. Innflutningur var einnig mikill á fjárfestingar- og rekstrarvörum eins og raunin hefur verið síðustu misseri en það stafar að mestu af fjárfestingum í stóriðju. Ekki er reiknað með að gengislækkunnin hafi mikil magnáhrif á innflutning fjárfestingar- og rekstrarvara meðan stóriðjuframkvæmdir eru í fullum gangi.