Skipting Dagsbrúnar hf., nú 365 hf. (auðkenni: 365), í tvö félög, sem samþykkt var á hluthafafundi félagsins sl. föstudag, veldur því að ekki er til viðskiptasaga fyrir félagið í núverandi mynd, segir í tilkynningu frá Kauphöllinni.

365 hf. mun því ekki verða í hlutabréfavísitölum Kauphallarinnar í dag en verður fært í vísitölurnar á fyrsta viðskiptadegi eftir að verðmótandi viðskipti með hlutabréf þess hafa átt sér stað.

Kauphöll Íslands hefur yfirfarið lýsingu 365 hf., undirritaða 18. nóvember, 2006, og staðfestir hér með að lýsingin uppfyllir kröfur laga um verðbréfaviðskipti nr. 33/2003 sem breytt var með lögum nr. 31/2005 og reglugerðum sem settar eru á grundvelli laganna og fylgir hún hér.