365 miðlar og hluthafar Konunglega kvikmyndafélagsins, sem rekur Miklagarð og Bravó, hafa komist að samkomulagi um að 365 miðlar taki yfir alla hluti í Konunglega kvikmyndafélaginu. Forsvarsmenn fyrirtækisins tilkynntu í lok apríl að leitað væri aukins hlutafjár til að styrkja rekstur félagsins, samhliða því sem öllum starfsmönnum þess var sagt upp störfum. Kostnaður við uppsetningu reyndist meiri en áætlaður var og ekki var vilji hluthafa til að skuldsetja áframhaldandi rekstur. Í kjölfar viðræðna aðila um hlutafjáraukningu varð niðurstaðan sú að 365 miðlar tæki yfir alla hluti í félaginu.

Fram kemur í tilkynningu að ákveðið hafi verið að gefa Miklagarði sumarfrí frá og með 1. júní nk. og munu nýir eigendur endurhugsa grundvöll þeirrar stöðvar.

Í tilkynningunni er haft eftir Ara Edwald, forstjóra 365 miðla:

„Við teljum að stofnun þessara tveggja stöðva hafi að mörgu leyti verið áhugaverð tilraun og menn hafa prófað sig áfram með spennandi nýjungar. Það er hins vegar ljóst að þessi rekstur hefur ekki fjárhagslegan grundvöll við núverandi efnahagsaðstæður. Áhugi okkar á þessu félagi byggir á því að við getum nýtt okkur tæknibúnað sem komið hefur verið upp og samþætt hluta af starfseminni við það sem við erum að gera.“