365 hf. hefur selt Baugi Group hf. 17% af atkvæðabæru hlutafé í Daybreak Holdco Limited (?Daybreak?), móðurfélagi Wyndeham Press Group Limited. 365 átti fyrir 36% af atkvæðabæru hlutafé að því er kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Eftir söluna er bókfært verð hlutafjár í Daybreak í bókum 365 miðað við gengi dagsins um 1,2 milljarður króna og atkvæðamagn hlutafjár 19%.

Söluverð er 9,1 milljónir punda eða tæplega 1.200 milljónir króna og þar af eru 1,9 milljónir punda greiddar með peningum eða 250 milljónir króna. Greiðsla eftirstöðva að fjárhæð 7,2 milljónir punda er þannig að af þeim arði og söluverðmæti sem Baugur fær af bréfunum fara 79% til 365 hf. en 21% til Baugs. Eignarhluturinn er seldur á bókfærðu verði segir í tilkynningu.


Salan er í samræmi við stefnu félagsins sem er að minnka fjárbindingu í hlutdeildarfélögum og draga úr sveiflum í rekstri.