365 hefur selt eigin bréf fyrir 120 milljónir króna, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni, til Disksins ehf. en fyrir viðskiptin skipaði Diskurinn ehf. sjötta sætið yfir stærstu hluthafa félagsins.

Er þetta í tengslum við það að stjórn 365 ákvað 26. janúar 2007 að auka hlutafé vegna kaupa á Senu ehf. í febrúar 2006.

Um er að ræða 24.650.657 hluti, selda á genginu 4,87. Eftir viðskiptin á 365, 104.664.569. hluti.