Afþreyingar- og fjölmiðlafyrirtækið 365 [ 365 ] stefnir að því að eignast dreifingarfyrirtækið Pósthúsið að fullu á þessum fjórðungi. 365 á 37% í Pósthúsinu, að því er fram kom í máli Ara Edwald á afkomufundi félagsins.

Helsta verkefni Pósthússins er að dreifa Fréttablaðinu, sem gefið er út af 365. Ari segir að þegar verið sé að meta afkomu blaðsins sé mikilvægt að horfa einnig til dreifingarinnar. "Það skiptir máli hvað er að gerast beggja vegna við girðinguna," sagði Ari.

Rekstur Pósthússins hefur gengið illa undanfarin ár. Ari sagði reksturinn hafa lagast mikið á síðasta ári og vera á áætlun. Á þessu ári vonast Ari til að félagið verði réttum megin við núllið.