Alls sóttu 37 um stöðu mannauðsstjóra fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Í hópi umsækjenda má meðal annars finna fyrrverandi mannauðsstjóra Hafrannsóknarstofnunar, fyrrverandi forstöðumann flugfreyja og -þjóna hjá Icelandair og fyrrverandi verkefnastjóra hjá Sýn.

Staðan var auglýst í liðnum mánuði og rann umsóknarfrestur út í 22. október. Sem stendur er síðan umhverfis- og auðlindaráðuneytið einnig að auglýsa lausa stöðu mannauðsstjóra en umsóknarfrestur rennur út 16. nóvember næstkomandi.

Klara Íris Vigfúsdóttir er meðal umsækjenda en hún hætti sem forstöðumaður flugfreyja og -þjóna hjá Icelandair í júlí. Hið sama má segja um Rögnu Maríu Ragnarsdóttur, aðstoðardeildarstjóra á bráðadeild LSH í Fossvogi, Sólborg Ösp Bjarnadóttur, framkvæmdastjóra Íshesta, og Þórönnu Hrönn Þórsdóttur mannauðsráðgjafa RÚV.

Guðjón Helgi Egilsson, sem var verkefnastjóri hjá Sýn þar til síðasta vor, sækir um og hið sama gerir Sólmundur Már Jónsson sem áður var mannauðsstjóri Hafrannsóknarstofnun Íslands. Lista yfir umsækjendur má sjá í heild sinni hér að neðan.

  • Aðalsteinn Kornelíus Gunnarsson Verkefnastjóri
  • Arnar Páll Ágústsson Nemi
  • Bergdís Linda Kjartansdóttir Mannauðssérfræðingur
  • Elsa María Rögnvaldsdóttir Mannauðsstjóri
  • Eva Stefánsdóttir Viðskiptastjóri
  • Guðbjörg Ómarsdóttir Skrifstofustörf og skilagreinar
  • Guðjón Helgi Egilsson Framkvæmdastjóri
  • Guðmundur Bjarni Benediktsson Ferðaráðgjafi
  • Harpa Hallsdóttir Mannauðsráðgjafi
  • Harpa Magnúsdóttir Mannauðsstjóri
  • Heiður Reynisdóttir Verkefnastjóri
  • Helga Hauksdóttir Starfsmannastjóri
  • Hildur Ösp Gylfadóttir Sviðstjóri
  • Hrafntinna Viktoría Karlsdóttir Aðstoðarmaður í rannsókn
  • Inga Guðrún Birgisdóttir Mannauðsráðgjafi
  • Ingibjörg Þorsteinsdóttir Sérfræðingur mannauðsmála
  • Jóhann Valdimar Ásgeirsson Starfsmaður í móttöku
  • Jóhanna Ella Jónsdóttir Mannauðsstjóri
  • Jóhanna Rúnarsdóttir Deildarstjóri
  • Klara Íris Vigfúsdóttir Forstöðumaður
  • Kolbrún Magnúsdóttir Fræðslu og starfsþróunarstjóri
  • Kristín Björg Eysteinsdóttir Sérfræðingur
  • Kristjana Diljá Þórarinsdóttir Mannauðsstjóri
  • Kristjana E Guðlaugsdóttir Starfsmannastjóri
  • Kristrún Friðriksdóttir Teymisstjóri
  • Ragna María Ragnarsdóttir Aðstoðardeildarstjóri
  • Ragnheiður Valdimarsdóttir Forstöðumaður mannauðsmála
  • Ragnhildur B. Guðmundsdóttir Yfirspyrill
  • Saqib Siddique Accounts Executive
  • Sigrún Kristjánsdóttir Mannauðsráðgjafi
  • Sólborg Ösp Bjarnadóttir Framkvæmdastjóri
  • Sólmundur Már Jónsson Aðstoðarforstjóri
  • Steinunn Una Sigurðardóttir Mannauðsstjóri
  • Svanhildur Dóra Björgvinsdóttir Logistics Manager
  • Valdís Ósk Jónsdóttir Uppeldis og menntunarráðgjafi
  • Vilhjálmur Kári Haraldsson Verkefnastjóri
  • Þóranna Hrönn Þórsdóttir Mannauðssérfræðingur