Tap Orkuveitu Reykjavíkur á fyrri hluta ársins 2011 nam 3.822 milljónum króna samanborið við 5.118 milljóna hagnað á sama tímabili 2010. Regluleg starfsemi OR skilaði þó betri afkomu á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við sama tímabil í fyrra. Það má rekja til aukinna tekna og aðhalds í rekstri, segir í tilkynningu. Handbært fé frá rekstrinum nam 8,9 milljörðum króna og hækkaði um rúma 2 milljarða króna frá sama tímabili 2010. Heildarskuldir þann 30. júní 2011 voru um 243,6 milljarðar króna en voru 233,7 milljarðar í árslok 2010.

„Vegna óhagstæðrar gengisþróunar á fyrri helmingi ársins 2011 voru fjármagnsliðir neikvæðir. Þetta gerðist þrátt fyrir hækkun álverðs á tímabilinu, sem eykur bókfært virði innbyggðra afleiða vegna raforkusölusamninga OR til stórnotenda. Hækkun á bókfærðum skuldum vegna tæplega 6% gengislækkunar á tímabilinu vó þyngra,“ segir í tilkynningu.

Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, segir í tilkynningu að það hafi náðst talsverður árangur í lækkun rekstrarkostnaðar hjá fyrirtækinu. „ Launagreiðslur hafa lækkað, bifreiðakostnaður sömuleiðis og dregið hefur verulega úr fjárfestingum í veitukerfunum. Halda þarf áfram á þeirri braut. Áhrif gengis íslensku krónunnar eru hins vegar neikvæð og skyggja á árangur í rekstri. Enn eru því ærin verkefni framundan.“

Úr tilkynningu OR:

Helstu niðurstöður tímabilsins 1. janúar til 30. júní 2011

Rekstur Orkuveitu Reykjavíkurskilaði 3.822 milljóna króna tapi fyrstu sex mánuði ársins 2011 samanborið við 5.118 milljóna króna hagnað á sama tímabili árið 2010.

Rekstrartekjur tímabilsins námu 16.676 milljónum króna en voru 13.561 milljón króna á sama tímabili árið áður.

Rekstrarhagnaður fyrirtækisinsfyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir, EBITDA, var 10.512 milljónir króna en 7.056 milljónir króna sama tímabil árið áður.

Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 11.154 milljónir króna á tímabilinu, en voru jákvæðir um 2.913 milljónir króna sama tímabil árið áður.

Heildareignir þann 30. júní 2011 voru 293.092 milljónir króna en voru 286.540 milljónir króna 31. desember 2010.

Heildarskuldir fyrirtækisins þann 30. júní 2011 voru 243.607 milljónir króna en voru 233.694 milljónir króna í árslok 2010.

Eigið fé þann 30. júní 2011 var 49.485 milljónir króna en var 52.847 milljónir króna 31. desember 2010.

Eiginfjárhlutfall var 16,9% þann 30. júní 2011 en var 18,4% í árslok 2010.

Árshlutareikningur Orkuveitunnar .