39 bílar hafa selst í desembermánuði sem er ríflega 95% samdráttur miðað við sama mánuð í fyrra að því er kemur fram í upplýsingum Umferðastofu. Þá seldust 850 bílar í desember sem yfirleitt er dræmur í bílasölu.

Toyota og Suzuki seldu flesta bíla í mánuðinum eða 9 bíla hvort umboð. Á árinu hafa selst 9026 bílar sem er 43,4% samdráttur miðað við árið á undan.