Auglýst var eftir umsækjendum um stöðu forstöðumanns Höfuðborgarstofu í lok ágúst. Alls bárust 41 umsókn, en tveir drógu umsókn sína til baka. Á meðal umsækjenda eru Eva María Jónsdóttir dagskrárgerðarmaður og þáttastjórnandi, Hulda Bjarnadóttir framkvæmdastjóri FKA og Jón Kaldal framkvæmdastjóri. Þetta kemur fram í frétt á vef Reykjavíkurborgar .
Höfuðborgarstofa ber ábyrgð á verkefnum tengdum ferðamálum og vinnur að því að nýta sóknarfæri og styrkleika Reykjavíkur á því sviði. Höfuðborgarstofa rekur fjölþætta upplýsingamiðlun fyrir ferðamenn og sér um framkvæmd stórra borgarhátíða ásamt samráði og ráðgjöf við skipuleggjendur annarra viðburða í borginni.
Næstu árin mun starfsemi Höfuðborgarstofu taka mið af nýrri aðgerðaáætlun Ferðamálastefnu Reykjavíkur. Þar eru sett í forgang verkefni tengd innviðum, gæðum og skipulagi áfangastaðarins, móttaka gesta, samstarf og þróun ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Jafnframt er fyrirsjáanlegt að málefni miðborgarinnar munu í auknum mæli verða á ábyrgð Höfuðborgarsofu. Nýr forstöðumaður mun því leiða framkvæmd nýrrar forgangsröðunar og þær breytingar á starfsemi sem hún kallar á.
Hér fyrir neðan má sjá lista yfir umsækjendur:
Agnar Jón Egilsson, framkvæmdastjóri
Anna Þorsteinsdóttir, staðarhaldari/rekstrarstjóri
Anna Þóra Ísfold Rebekkudóttir, framkvæmdastjóri
Ágústa Hrund Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri
Áshildur Bragadóttir, framkvæmdastjóri
Ásta Guðrún Guðbrandsdóttir, sölu og markaðsráðgjafi
Björg Jónsdóttir, MPM
Börkur Gunnarsson, verkefnastjóri/menningarblaðamaður
Davíð Freyr Þórunnarson, framkvæmdastjóri
Dóra Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri
Einar Árnason, hagfræðingur
Eva María Jónsdóttir, dagskrárgerðarmaður/þáttastjórnandi
Gissur Guðmundsson, matreiðslumeistari
Guðmundur Eggert Finnsson, tækniráðgjafi og viðburðastjóri
Gylfi Már Sigurðsson, nemi
Hafliði Sævarsson, verkefnastjóri
Herborg Svana Hjelm, rekstrarsérfræðingur
Hulda Birna Baldursdóttir, viðskiptafræðingur
Hulda Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri
Jón Gunnar Borgþórsson, viðskiptafræðingur
Jón Kaldal, framkvæmdastjóri
Jón Pálsson, viðskiptafræðingur
Karen María Jónsdóttir, verkefnastjóri
Katrín Þyrí Magnúsdóttir, viðskiptafræðingur
Kristín Ágústsdóttir, forstöðumaður
Magnús Bjarni Baldursson, verkefnastj./framkvæmdastj.
María Kristín Gylfadóttir ,MBA
Ólöf María Jóhannsdóttir, viðskiptafræðingur
Páll Helgi Hannesson, kennari
Páll Línberg Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Sigríður Gunnarsdóttir, leiðsögumaður
Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir, framkvæmdastjóri
Sindri Viðarsson, BA. í sagnfræði
Sólveig Lilja Einarsdóttir, ráðgjafi/verkefnastjóri
Sólveig Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri
Tómas Oddur Eiríksson, yogakennari
Vala Björg Garðarsdóttir, fornleifafræðingur
Þorvaldur Tolli Ásgeirsson, orku- og umhverfistæknifræðingur
Þórey Svanfríður Þórisdóttir, viðskipta- og markaðsráðgjafi