Heildarfjöldi gistinátta í desember 2018 jókst um 4,3% frá fyrra ári. Gistinætur ferðamanna á öllum gististöðum í desember síðastliðnum voru 523.600, en þær voru 494.400 í sama mánuði fyrra árs. Greint er frá þessu á vef Hagstofunnar .

Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru 341.300. Gistinætur í íbúðagistingu, farfuglaheimilum, tjaldsvæðum o.þ.h. voru 96.300 og um 86.000 í gegnum vefsíður á borð við Airbnb. Heildarfjöldi gistinátta í desember jókst um 4,3% milli ára, þar af var 0,9% aukning á hótelum og gistiheimilum, 18,5% fjölgun á öðrum tegundum gististaða og 15% aukning á stöðum sem miðla gistingu gegnum Airbnb og svipaðar síður. Einnig voru gistinætur erlendra ferðamanna um 3.000 í bílum utan tjaldsvæða og um 13.000 hjá vinum og ættingjum, í gegnum húsaskipti eða á öðrum stöðum þar sem ekki var greitt sérstaklega fyrir gistingu.

Færri hótelgistinætur á suðvesturhorninu í desember

Gistinætur á hótelum í desember síðastliðnum voru 305.200 sem er 1% aukning frá sama mánuði árið áður. Samdráttur var á fjölda gistinátta á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum, en fjölgun í öðrum landshlutum. Um 68% allra gistinátta voru á höfuðborgarsvæðinu eða 206.700.

Herbergjanýting í desember 2018 var 54,0%, sem er lækkun um tæp 4 prósentustig frá desember 2017 þegar hún var 57,9%. Á sama tíma hefur framboð gistirýmis aukist um 8,3% mælt í fjölda herbergja. Nýtingin í desember var best á höfuðborgarsvæðinu, eða 71,4%.

Um 91% gistinátta á hótelum voru skráðar á erlenda ferðamenn eða 276.500, sem er 1% aukning frá sama mánuði fyrra árs. Bandaríkjamenn voru með flestar gistinætur (82.500), síðan Bretar (75.100) og Þjóðverjar (12.200) en gistinætur Íslendinga voru 38.300.

29% aukning hótelgistinátta á Vesturlandi og Vestfjörðum

Yfir árið 2018 var heildarfjöldi gistinátta á hótelum um 4.466.000, sem er 5% aukning frá 2017. Hótelgistinóttum fjölgaði á Vesturlandi og Vestfjörðum um 29% milli áranna 2017 og 2018, úr 191.000 í 246.700. Einnig má nefna 16% aukningu á heildarfjölda hótelgistinátta milli ára á Suðurlandi, úr 774.100 í 894.300. Gistinætur á hótelum á höfuðborgarsvæðinu voru 58% af öllum hótelgistinóttum árið 2018 og var fjöldi þeirra nánast óbreyttur milli ára.