40% forsvarsmanna fyrirtækja í íslensku atvinnulífi telja opinberar stofnanir eða fyrirtæki í opinberum rekstri vera í samkeppni við sitt fyrirtæki.

Þá telja 51% fyrirtækja í þjónustu sig vera í samkeppni við hið opinbera, 49% fyrirtækja í verslun og 58% fyrirtækja í byggingar- eða verktakastarfsemi.

Þetta kemur fram í könnun um rekstrarumhverfi fyrirtækja á Íslandi sem Capacent Gallup framkvæmdi fyrir Viðskiptaráð, en henni lauk 3. febrúar síðastliðinn.

Frá þessu er greint á vef Viðskiptaráðs en niðurstöður könnunarinnar verða birtar og útfærðar nánar í skýrslu um efnið sem kemur út samhliða Viðskiptaþingi, sem haldið verður í næstu viku.

Meðal annara áhugaverðra niðurstaðna könnunarinnar er að 39% fyrirtækja, sem eru í miklum alþjóðlegum viðskiptum, telja sig vera í samkeppni við hið opinbera.

„Þessar niðurstöður vekja óneitanlega upp spurningar varðandi umfang þjónustuframboðs hins opinbera og hvort verkaskipting ríkis og einkaaðila sé eins og best verður á kosið,“ segir á vef Viðskiptaráðs.