Fjörutíu starfsmönnum Íslenskra aðalverktaka (ÍAV) hefur verið sagt upp störfum. ÍAV segir í tilkynningu að félagið hafi neyðst til að fækka starfsfólki vegna verkefnaskorts og fyrirsjáanlegs áframhaldandi samdráttar í verklegum framkvæmdum á Íslandi á komandi vetri. Auk uppsagna er skartfshlutfall nokkra starfsmanna skert.

„Um er að ræða sérlega vel hæft og öflugt starfsfólk með gríðarlega þekkingu og reynslu en við núverandi aðstæður á verktakamarkaði verður ekki hjá því komist að fækka starfsmönnum. Framboð nýrra verkefna er nánast ekkert og ekki er útlit fyrir breytingu á því á næstu mánuðum þó svo tækifærin séu vissulega til staðar,“ segir í tilkynningunni.

Úr tilkynningu ÍAV:

„Allt frá árinu 2008 hefur verið mikill samdráttur í framkvæmdum á Íslandi og er samdrátturinn nú orðinn yfir 60%.  Yfir 8000 manns sem unnu við verktakastarfsemi og mannvirkjagerð hafa misst vinnuna og orðið að leita í störf erlendis eða á atvinnuleysisbætur.  Þar að auki hefur dregið úr starfshlutfalli fjölmargra annarra.  Þrátt fyrir yfirlýsingar stjórnvalda um fjárfestingar og nýjar framkvæmdir sýna tölur Hagstofunnar að enn er að dragast saman í verktakastarfsemi og mannvirkjagerð.

Fjöldi starfsmanna fyrirtækisins ræðst af þeim verkefnum sem félagið er að vinna að hverju sinni og stöðugt þarf að endurskoða starfsmannafjölda með tilliti til verkefna sem liggja fyrir. Stjórnendur og tæknimenn ÍAV hafa lagt í mikla vinnu við að reyna að afla félaginu nýrra verkefna. Þessi vinna heldur að sjálfsögðu áfram og er enn haldið í vonina um að nýrra verkefna verði aflað á næstu mánuðum þannig að hægt verði að draga uppsagnir til baka.“