Í dag fór fram ráðstefna og sýning með ljósmynda- og kvikmyndabúnaði frá Canon í Hörpu. Tæplega 400 ljósmyndaáhugamenn voru þar mættir og kynntu sér ljósmyndabúnað frá fyrirtækinu.

Finnur Oddsson, forstjóri Nýherja, setti ráðstefnuna og nýtti tækifærið um leið og tók „selfie“ með Þorsteini Joð, sem var kynnir á ráðstefnunni, með Canon Powershot G7 X. Útkomuna má sjá hér að ofan.

Á sýningunni gátu gestir skoðað og prófað úrval ljósmynda-, töku- og prentbúnaðar frá Canon auk linsubúnaðar í öllum stærðum og gerðum.