Stjórn Jaguar Land Rover hefur tilkynnt um fjárfestingu í framleiðslumálum fyrirtækisins fyrir sem nemur tveimur milljörðum sterlingspunda, um 400 milljörðum króna.

Annars vegar mun fyrirtækið reisa nýja bílaverksmiðju í Slóvakíu fyrir um milljarð sterlingspunda, um 200 milljarða króna, en þar mun ál gegna lykilhlutverki. Hins vegar er um að ræða nýfjárfestingar í Bretlandi fyrir sömu upphæð.

Nýja verksmiðjan verður reist í borginni Nitra, skammt austan höfuðborga Slóvakíu, Bratislava. Alls munu um 2.800 ný störf skapast og verða þar framleiddar bílgerðir af næstu kynslóðum Jaguar Land Rover. Eins og áður sagði verður megináherslan lögð á ál sem smíðamálm í samræmi við sjálfbærnistefnu fyrirtækisins. Auk þess verður ráðist í umfangsmiklar fjárfestingar í Bretlandi fyrir tæpan milljarð punda sem er mesta innspýting í breskan bílaiðnað í áratugi. Þær fjárfestingar koma til með að skapa nokkur hundruð ný störf.

Auk nokkurra bílaverksmiðja í Bretlandi starfrækir Jaguar Land Rover nú þegar verksmiðjur í Brasilíu, Kína og á Indlandi. Bílaframleiðandinn hefur á undanförnum árum m.a. lagt aukna áherslu á að létta bifreiðar sínar og auka eldsneytisnýtingu í samræmi við umhverfissjónarmið. Nýja bílaverksmiðjan í Nitra verður byggð sérstaklega með þessi markmið í huga. Framleiðslugetan í Nitra verður upp á 150 þúsund bíla á ári. Framkvæmdir hefjast strax á næsta ári og er gert ráð fyrir að fyrsti bíllinn renni að færibandinu síðari hluta árs 2018.

Jaguar Land Rover hefur á undanförnum árum fjárfest umtalsvert rekstri sínum í Castle Bromwich, Halewood og Solihull í Bretlandi til að styðja við þau markmið sín sem einkenna allar nýjar kynslóðir bílgerða framleiðandans, svo sem Jaguar XE, XF og F-PACE, Range Rover Evoque Convertible og Land Rover Discovery Sport. Auk þessa er fyrirhugað að stækka tækniþróunar- og hönnunardeildirnar í Whitley, Coventry og fjárfesta í Nýsköpunarmiðstöð bílgreina í Bretlandi sem starfrækt er við háskólann í Warwick. Á undanförnum árum hefur starfsmönnum Jaguar Land Rover fjölgað um meira en 13 þúsund og eru þeir nú alls rúmlega 37 þúsund talsins. Á sama tíma hefur fyrirtækið fjárfest á ýmsum sviðum fyrir meira en 11 milljarða punda.