Bílaþing Heklu afhenti rétt fyrir áramót fjögur þúsundasta bílinn sem seldur er á árinu. Árið 2005 er því metár hjá Bílaþingi því aldrei áður hafa 4.000 notaðir bílar selst á einu ári.

Bíll númer 4.000 var af gerðinni Volkswagen Touareg og af því tilefni fékk kaupandinn, Tryggvi Guðmundsson, blóm frá sölufólki Bílaþings Heklu. Jón Trausti Ólafsson, markaðsstjóri Heklu, er að vonum ánægður með árangurinn. "Salan er nokkuð jöfn hjá okkur yfir árið og desembermánuður, sem er að öllu jöfnu lakasti bílasölumánuður ársins, hefur verið góður -- og sérstaklega vikan fyrir jól. Við afgreiddum 15-20 bíla á Bílaþingi og 31 nýjan bíl á Þorláksmessu."

Í haust opnaði Bílaþing Heklu nýtt útibú á Kletthálsi 11 en er einnig með starfsemi í húsnæði Heklu hf. á Laugavegi 174. Alls starfa 10 sölumenn hjá Bílaþingi Heklu.