FBI hefur handtekið 406 manns í aðgerðum sínum gegn svikum tengdum húsnæðislánum.

Meðal þeirra sem handteknir voru nú eru fasteignasalar og menn sem hjálpa fólki við töku fasteignalána. Fyrr í dag voru tveir fyrrum yfirmenn Bear Stearns handteknir.

Bandaríkjamenn reka nú 144 dómsmál gegn sakborningunum 406, vegna margs konar svindls tengdu fasteignalánum. Samkvæmt upplýsingum frá bandaríska dómsmálaráðuneytinu áætla þeir að tap húsnæðiseigenda vegna svika tengdum húsnæðislánum sé samtals um 1 milljarður Bandaríkjadala.