Á fyrsta ársfjórðungi 2008 var meðalfjöldi vinnustunda 40,8 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 45,5 klst. hjá körlum en 35,1 klst. hjá konum.

Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í fullu starfi var 46,2 klst., 49 klst. hjá körlum en 41,7 klst. hjá konum.

Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í hlutastarfi voru 22 klst., 20 klst. hjá körlum en 22,8 klst. hjá konum.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands en þar voru birtar í morgun tölur um atvinnuþátttöku á fyrsta ársfjórðungi 2008.

Á fyrsta ársfjórðungi 2007 var fjöldi vinnustunda 41,6 klst., 47,1 klst. hjá körlum en 34,7 klst. hjá konum. Þeir sem voru í fullu starfi unnu 47,4 klst. að jafnaði en þeir sem voru í hlutastarfi unnu að jafnaði 23,3 klst.