419 rekstraraðilar sóttu um tekjufallsstyrki fyrir um 2,7 milljarða króna fyrstu dagana eftir að opnað var fyrir umsóknir og hefur Skatturinn, sem fer með framkvæmd úrræðisins, þegar afgreitt 69 umsóknir fyrir um 590 milljónir. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins .

Fram kemur að síðustu mánuði hafi yfir 3.000 fyrirtæki og tugþúsundir einstaklinga nýtt sér ýmis úrræði stjórnvalda, sem eru á annan tug talsins. Þannig hafi um 1.200 rekstraraðilar fengið lokunarstyrki fyrir um 1,7 milljarða króna og senn verði opnað fyrir umsóknir um viðspyrnustyrki sem Alþingi samþykkti í desember.

Meðal annarra úrræða vegna heimsfaraldursins má nefna stuðningslán, viðbótarlán, laun í sóttkví, ráðningarstyrki, styrki til greiðslu launa á uppsagnarfresti, tekjutengdar atvinnuleysisbætur og frestun skattgreiðslna.

Einnig aðgerðir á borð við barnabótaauka, sem greiddur var út sl. vor, ferðagjöf sem gildir út 31. maí næstkomandi og endurgreiðslu virðisaukaskatts af starfsemi sem felur í sér endurbætur og viðhald húsnæðis, heimilisaðstoð og bílaviðgerðir, en sú aðgerð gildir út árið. Fjármála- og efnahagsráðuneytið heldur úti upplýsingasíðu um nýtingu úrræðanna.