Farþegum Iceland Express fjölgaði um 42% í maímánuði miðað við sama mánuð á síðasta ári og sætanýting í flugum á vegum félagsins var 85% í mánuðinum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu en þar segir jafnframt að fyrsta vélin á vegum félagsins lendi í Chicago, þriðju stærstu borg Bandaríkjanna, í dag. Flogið verður vikulega til Chicago sem er þriðji áfangastaður félagsins vestanhafs en þegar er flogið til New York og Boston.