42 starfsmönnum Íslandsbanka og Byr var sagt upp í dag. Þetta á við um sameinaðan Íslandsbanka og Byr. Konur eru 26 en karlarnir 16.

Í tilkynningu frá Íslandsbanka segir að um sé að ræða óhjákvæmilegar hagræðingaraðgerðir í kjölfar sameiningar Íslandsbanka og Byrs. Aðgerðirnar séu hluti af almennri hagræðingu í íslenska fjármálakerfinu og eru mikilvægar í ljósi aukins eftirlitskostnaðar og vaxandi opinberrar gjaldtöku á fjármálafyrirtæki.

Þá segir að reynt hafi verið að takmarka takmarka uppsagnir eins og hægt er.

Auk starfsmannanna 42 sem sagt var upp var gengið frá starfslokum við 21 starfsmann þar sem hluti fer á eftirlaun og aðrir hætta að eigin ósk. Þá verða tímabundnir samningar ekki endurnýjaðir. Alls hætta því 63 starfsmenn nú um mánaðamótin. Þar með lýkur hagræðingaraðgerðum í höfuðstöðvum sameinaðs banka, samkvæmt tilkynningunni.

Íslandsbanki hefur samið við Hagvang um ráðgjöf og aðstoð við starfsmenn við atvinnuleit auk þess sem boðið verður upp á sálfræðiaðstoð fyrir þá sem þess óska.