Hagnaður af rekstri Nýherja í þriðja ársfjórðungi nam 4,3 mkr eftir skatta samanborið við 36,3 mkr hagnað í sama ársfjórðungi á síðasta ári. Hagnaður félagsins fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir í ársfjórðungnum - EBITDA - var 29,4 mkr borið saman við 72,9 mkr í sama fjórðungi árið áður.

Rekstrartekjur fjórðungsins námu 1.366,3 mkr en voru 1326,4 mkr í sama ársfjórðungi árið áður og hækkuðu því um 3%. Sala hugbúnaðarleyfa minnkaði á milli fjórðunga en önnur vörusala jókst um 4% og þjónustutekjur jukust um 32% á milli fjórðunga.

Hlutfall EBITDA af veltu í fjórðungnum var 2,2% samanborið við 5,5% á sama tímabili árið áður. Launakostnaður, annar rekstrarkostnaður og afskriftir hækkuðu um 6,2% frá sama tímabili árið áður. Gengishagnaður nam 15,1 mkr samanborið við 1,1 mkr gengistap á sama tímabili árið áður. Tap af rekstri dótturfélaga nam 10,9 mkr samanborið við 9,3 mkr tap fyrir sama tímabil í fyrra.

Á stjórnarfundi Nýherja hf. í dag 21. október 2005 samþykkti stjórn félagsins árshlutareikning þriðja ársfjórðungs 2005 og hefur hann verið kannaður af endurskoðendum félagsins.