Viðskipti með fisk í heiminum ná því að verða meira en 370 milljarðar dollarar á ári eftir um fjögur ár, sem samsvarar um 43 þúsund milljörðum íslenskra króna. Þetta kemur fram í nýrri alþjóðlegri skýrslu þar sem spáð er í spilin fram til ársins 2015.

Fjallað er um málið á vef Fiskifrétta .

Segir að um verulega hækkun sé að ræða sem drifin er áfram af aukinni eftirspurn eftir fæði sem innheldur heilnæm prótin. Einnig mun eftirspurn aukast eftir því sem fólki fjölgar í heiminum og með batnandi efnahag þegar þjóðir heims rétta úr kútnum eftir efnahagskreppuna. Í kreppunni leitaði fólk gjarnan í ódýrari mat og fækkaði ferðum á matsölustaði. Þá mun almenn hækkun matvæla í heiminum styðja við þessa þróun.

Nánar er fjallað um málið á vef Fiskifrétta .