Ef Ísland nær að leggja Króata að velli á morgun og tryggja sig upp úr riðlinum, þá tryggir liðið sér minnst 430 milljónir króna til viðbótar við það verðlaunarfé sem þegar hefur verið tryggt. Vísir greinir frá þessu.

KSÍ hefur þegar tryggt sér 860 milljónir króna í verðlaunafé, fyrir að taka þátt í riðlakeppni HM.

Þá fær KSÍ einnig 160 milljónir króna í undirbúningskostnað. Þessi upphæð á að dekka þann kostnað sem fellur á knattspyrnusamböndin vegna mótsins.