Alls bárust 4.328 umsóknir um þau 1.009 hreindýr sem heimilt er að fella árið 2012.

Dregið verður úr hreindýraveiðileyfum á laugardaginn, 25. feb., kl 14:00 í húsakynnum Þekkingarnets Austurlands. Hægt verður að fylgjast með útdrættinum í beinni útsendingu á vefnum.

Á vef Umhverfisstofnunar kemur fram að fimmskiptareglan er í gildi í útdrættinum og eru 46 aðilar sem sóttu um sem falla undir þá reglu og fara í forgang á biðlista verði þeir ekki dregnir út í útdrættinum.

Niðurstöður útdráttar verða svo sendar umsækjendum í tölvupósti á sunnudaginn.

Hreindýr
Hreindýr
© Gunnhildur Lind Photography (Gunnhildur Lind Photography)