Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi mældist 4,5% í febrúar 2022 en þetta kemur fram í vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands. Árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka mældist 82,1% og árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi 78,4%.

Á tilkynningu á vef Hagstofu segir að árstíðarleiðrétt leitni atvinnuleysis hafi dregist saman um 0,4 prósentustig síðustu sex mánuði frá september 2021. Árstíðaleiðrétt leitni hlutfalls starfandi hafi aukist um 1,9 prósentustig síðustu sex mánuði.

Þá segir að samkvæmt mælingu án árstíðaleiðréttingar, sé áætlað að 215.400 (±6.700) einstaklingar á aldrinum 16-74 ára hafi verið á vinnumarkaði í febrúar 2022 sem jafngildi 80,4% (±2,5) atvinnuþátttöku. Af vinnuaflinu hafi 206.200 (±6.400) verið starfandi og 9.200 (±3.100) atvinnulausir og í atvinnuleit.

Hlutfall starfandi af mannfjölda mældist þannig 77,0% (±3,1) og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli 4,3% (±1,4) og starfandi unnu að jafnaði 34,4 (±1,3) stundir á viku í febrúar 2022. Fram kemur að samanburður við febrúar 2021 sýni að atvinnuleysi hafi dregist saman um 1,8 prósentustig á milli ára og hlutfall starfandi aukist um 5,3 prósentustig.

13,1% slaki á vinnumarkaði

Áætlað er að 29.700 einstaklingar hafi haft óuppfyllta þörf fyrir atvinnu (slaki) sem jafngildir 13,1% af samanlögðu vinnuafli og mögulegu vinnuafli. Af þeim voru 31,3% atvinnulausir, 22,1% tilbúnir að vinna en ekki að leita, 13,6% í atvinnuleit en ekki tilbúnir að vinna og 33% starfandi í hlutastarfi og vilja vinna meira (vinnulitlir).

Ef við berum saman gögnin við febrúar 2021 má sjá að hlutfall þeirra sem hafa óuppfyllta þörf fyrir atvinnu hefur lækkað lítillega eða um 0,7 prósentustig á milli ára. Árstíðaleiðrétt leitni slaka hefur lækkað lítillega á síðustu sex mánuðum eða um 1,2 prósentustig.