Í ágústmánuði voru fluttar út vörur fyrir 31,3 milljarða króna og inn fyrir 34,5 milljarða króna. Vöruskiptin í ágúst voru því óhagstæð um 3,2 milljarða króna.

Í ágúst 2007 voru vöruskiptin óhagstæð um 17,4 milljarða króna á sama gengi.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands í morgun.

Þar kemur fram að fyrstu átta mánuðina 2008 voru fluttar út vörur fyrir 272,3 milljarða króna en inn fyrir 317,3 milljarða króna. Halli var á vöruskiptunum við útlönd sem nam 45,0 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 81,9 milljarða á sama gengi.

Vöruskiptajöfnuðurinn var því 36,9 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur

Þá kemur fram að fyrstu átta mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruútflutnings 35 milljörðum eða 14,7% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður.

Iðnaðarvörur voru 51,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 46,5% meira en árið áður. Sjávarafurðir voru 36,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 4,9% minna en á sama tíma árið áður.

Mest aukning var í útflutningi á áli en á móti kom samdráttur í útflutningi sjávarafurða, aðallega frystra flaka, og í útflutningi skipa og flugvéla.

Innflutningur

Fyrstu átta mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruinnflutnings 1,9 milljörðum eða 0,6% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður.

Mest aukning varð í innflutningi á hrá- og rekstrarvörum og á eldsneyti og smurolíum en á móti kom samdráttur í innflutningi á fjárfestingarvöru og flutningatækjum, aðallega flugvélum og fólksbílum.