Rekstrarhagnaður Farice árið 2018 var 933 þúsund evrur (hagnaður fyrir fjármagnsliði) og óbreyttur frá fyrra ári. Tap félagsins nam 333 þúsund evrum, sem nemur rétt rúmum 45 milljónum króna, samanborið við 346 þúsund evra tap árið áður. Heildartekjur voru 14,6 milljóni evrar en 15 milljónir 2017. EBITDA var 7.994 þúsund evrur sambanborið við 7.986 þúsund evrur árið 2017. Eigið fé jókst úr 37% í 39%. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Farice er fyrirtæki á sviði gagnaflutninga- og fjarskiptasambanda við útlönd og er hluti af innviðum Íslands og ein af grunnstoðum íslensks samfélags.  Fyrirtækið rekur tvo sæstrengi á milli Íslands og Evrópu og kaupir framhaldssambönd á landi og myndar þannig samskiptakerfi fyrir Ísland sem tengist öðrum  samskiptakerfum í helstu tengistöðvum í Evrópu. Kerfisrekstur félagsins gekk vel eins og undanfarin ár og var samband Íslands við umheiminn áreiðanlegt sem fyrr.