„Kjarni.is er í raun íslensk verslunarmiðstöð á netinu. Það hefur orðið mikil fjölgun í íslenskum netverslunum. Það getur verið mikil og tímafrek vinna sem fer í það að vera sýnilegur með verslun á netinu en með því að vera með allar netverslanir á einum stað eykst sýnileiki þeirri. Einnig aukast líkur á að netverslun nái að blómgast. Þetta hjálpar bæði viðskiptavinum og eigendum,“ segir Þór Sigurðsson, sem stýrir vefsíðunni kjarni.is , en þar er að finna um 450 íslenskar netverslanir á einum stað.

Þór segir að netverslun sé að aukast ár frá ári og fólk versli fjölbreyttari vörur núna en áður. Verslun með fatnað, skó og íslenska hönnun á netinu hafi á undanförnum árum aukist til muna og mikil vitundarvakning hafi orðið með samanburð á verði og gæðum á vörum.

Fleiri gera jólainnkaupin á netinu

Jólainnkaup á netinu eru í auknum mæli að taka við hinum hefðbundnu verslunarferðum fyrir jólin þar sem gengið er búð úr búð til að finna réttu gjöfina.,,Sífellt fleiri gera jólainnkaupin á netinu enda er eðli verslunar að breytast hratt. Fólki finnst þægilegt að kaupa í símanum og tölvunni í stað þess að fara í stressið í verslunarmiðstöð. Samkvæmt nýútkominni skýrslu Rannsóknarseturs verslunarinnar kemur fram að jólainnkaupin eru að breytast. Íslensk netverslun eykst jafnt og þétt í takt við það sem er að gerast erlendis og margir kjósa að versla jólagjafir á netinu. Netverslun sparar sporin og auðveldar innkaupin,” segir Þór.

Í skýrslunni er áætlað að verslun að verslun vegna jólanna verði um 4,2% hærri nú í ár en í fyrra eða sem nemur tæplega 15 milljöðrum króna. Þannig má áætla að hver Íslendingur eyði um 45 þúsund krónum í jólagjafir að meðaltali.