Félagið Ægir Invest sem er í eigu Gísla Haukssonar, forstjóra GAMMA, hagnaðist um 46 milljónir króna árið 2014.

Eignarhlutur félagsins í GAMMA var metinn á 54 milljónir króna í upphafi síðasta árs, en auk þess átti fé­lagið listmuni fyrir 90 milljónir króna á kostnaðarverði og skammtímakröfur upp á 42 milljónir. Eignir Ægis Invest námu samtals 188 milljónum króna í upphafi síðasta árs en eigið fé 120 milljónum.