Auglýsingastofan Jónsson & Le'macks hagnaðist um 22 milljónir króna á síðasta ári samkvæmt ársreikningi félagsins. 47 milljóna viðsnúningur varð frá árinu á undan þegar félagið tapaði 25 milljónum. Tekjur námu 683 milljónum króna og jukust um 48 milljónir milli ára. Rekstrarhagnaður nam 17 milljónum króna en hagnaður vegna afkomu dótturfélaga nam 12 milljónum.

Eignir félagsins námu 256 milljónum í árslok á meðan skuldir námu 225 milljónum. Eiginfjárhlutfall var því 12%. Viggó Örn Jónsson er framkvæmdastjóri en hann er jafnframt einn af eigendum fyrirtækisins.