Laun hækkuðu um 0,4% frá fyrri ársfjórðungi Samkvæmt vísitölu launa voru regluleg laun að meðaltali 0,4% hærri á fjórða ársfjórðungi 2008 en í ársfjórðungnum á undan.

Á sama tímabili lækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 0,5% að meðaltali en laun opinberra starfsmanna hækkuðu um 2,7%.

Frá fyrra ári hækkuðu laun um 8,3%, þar af um 6,4% á almennum vinnumarkaði og um 12,7% hjá opinberum starfsmönnum.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands þar sem í dag eru birt gögn um vísitölu launa á fjórða ársfjórðungi 2008.

Laun stjórnenda á almennum vinnumarkaði lækkuðu um 2,6%

Á vef Hagstofunnar kemur fram að frá fyrri ársfjórðungi hækkuðu laun verkafólks mest eða um 1,0% en laun stjórnenda lækkuðu á sama tímabili um 2,6%. Frá fyrra ári hækkuðu laun verkafólks mest eða um 10,0% en laun stjórnenda minnst, um 2,9%.

Frá fyrri ársfjórðungi mældist hækkun launa í iðnaði 0,9%. Á sama tímabili lækkuðu laun í öðrum atvinnugreinum á almennum vinnumarkaði. Mest mældist lækkun í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum, eða 3,0%. Frá fyrra ári hækkuðu regluleg laun mest í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, 8,6% en minnst í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum, eða um 2,7%.

SJá nánar á vef Hagstofu Íslands.