„Nú í nóvember hefur 4G verið eflt í Kópavogi og Hafnarfirði, og sendar settir upp við Geysi, í Grindavík og á Sauðárkróki. Í september setti Síminn til að mynda upp 4G á Ísafirði og Akranesi,“ segir Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans. Nú nær framsímanet Símans til ríflega 72% landsmanna, en það hefur stækkað ört á árinu eða sexfaldast litið til fjölda senda.

„Ljóst er að sífellt fleiri landsmenn eru tilbúnir fyrir 4G tæknina og nú er svo komið að 85 af hverjum 100 seldum símtækjum í verslunum Símans styðja 4G. Þróunin er hröð og litið á heildina styður nú ríflega fjórðungur tækja í umferð 4G miðað við 2% í ársbyrjun 2013," segir Gunnhildur.

Farsímanetið er ólíkt fastanetinu heima fyrir að því leyti að hraðinn á því deilist á milli þeirra sem nota það. „Nú þegar 4G netið þéttist og æ fleiri eigendur 4G tækja færast yfir á þessu fjórðu kynslóð farsímaneta verður enn meiri hraði til skiptana handa þeim sem stóla á 3G kerfið, en það hefur einnig verið eflt á undanförnum árum með sífellt auknum hraða. Uppbygging 4G bætir því upplifun allra viðskiptavina Símans á netinu, hvort sem þeir eiga 4G tæki eða ekki."

Frá því í vor hafa 4G sendar verið settir upp víða um land, meðal annars á Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi. Þá hefur netið verið þétt á höfuðborgarsvæðinu og sett upp í stærstu sumarbústaðarlöndum landsins, eins og í Grímsnesi, Hvalfirði og á Þingvöllum.