Sheikh Mohammed Bin Khalifa Al-Thani hefur keypt 5,01% í Kaupþingi og verður þar með þriðji stærsti hluthafi bankans, að því er segir í tilkynningu.

Sheikh Mohammed keypti í byrjun júní 12,6% í Alfesca eins og Viðskiptablaðið greindi frá á sínum tíma.

Fjárfestingin í Kaupþingi nemur 26 milljörðum króna og fer fram í gegnum eignarhaldsfélagið Q Iceland Holding ehf., eignarhaldsfélag Sheikh Mohammed.

Í tilkynningunni segir að hans hátign Sheikh Mohammed sé í konungsfjölskyldunni sem hafi verið við völd í Katar frá því á nítjándu öld.

Í tilkynningunni er haft eftir Sheikh Mohammed:

„Við höfum fylgst náið með Kaupþingi í nokkurn tíma og teljum þetta góða fjárfestingu. Staða Kaupþing er sterk og við höfum trú á stefnu og stjórnendum bankans, enda hefur Kaupþing náð góðum árangri við þær erfiðu aðstæður sem nú eru á markaðnum og sýnt fram á getu til þess að breytast og laga sig að nýjum veruleika í bankastarfsemi. Við lítum á hlut okkar í Kaupþingi sem langtímafjárfestingu og hlökkum til að eiga góð samskipti við stjórnendur bankans.“

Sigurður Einarsson, stjórnarformaður, segir í tilkynningunni:

„Okkur er mikil ánægja að bjóða hans hátign Sheikh Mohammed Bin Khalifa Al-Thani velkominn í hluthafahóp Kaupþings. Það hefur lengi verið stefna okkar að laða nýja fjárfesta að bankanum og því er ánægjulegt að sjá að við höfum nú náð að breikka hluthafahópinn enn frekar. Við hlökkum til þess að vinna með hans hátign Sheikh Mohammed í framtíðinni.“