Virði auglýsingamarkaðar á farsímum jókst um 150% milli áranna 2010 og 2011. Heildarvirði markaðarins í fyrra var 5,3 milljarðar dala, samkvæmt úttekt Interactive Advertising Bureau (IAB).

Virðið var ákvarðað út frá veltu fyrirtækja á markaði. Sérfræðingur IAB telur að þessi markaður muni halda áfram að vaxa á næstu árum.