Árið 2014 gaf rapparinn 50 Cent út plötuna Animal Ambition og varð fyrsti listamaðurinn til þess að taka við Bitcoin í skiptum fyrir plötuna að því er kemur fram á vef BBC .

Rapparinn seldi svo plötur fyrir 700 bitcoin en gleymdi svo að hann ætti þá. Í dag er virði 700 bitcoin um 7,4 milljónir dala þó það geti tekið hröðum breytingum m.v. sveiflur í gengi rafmyntarinnar.

Árið 2014 fékkst bitcoin á genginu 662 dalir en er nú á rúmlega 10.500 dali.