Velta með bréf í Icelandair Group nam 522 milljónum króna og hækkaði gengi bréfa um 0,78%. Þá var hundrað milljóna króna velta með bréf Haga en verð bréfa fyrirtækisins lækkaði um 0,35%. Annars var fremur lítil velta á hlutabréfamarkaði. Velta með bréf í öðrum fyrirtækjum var undir 100 milljónum króna.

Þá var einnig rólegt yfir skuldabréfamarkaðnum í dag. Mesta veltan var með bréf í flokknum RIKB 22 sem var um 314 milljónir króna. Ávöxtunarkrafan lækkaði um 2 punkta.