Olíurisinn BP hefur gefið frá sér yfirlýsingu þar sem kemur fram að um 5000 manns verði sagt upp hjá fyrirtækinu á næstunni. Mikill samdráttur var hjá BP á síðasta ári og hagnaður óvinunandi að sögn talsmanns fyrirtækisins.

Hagnaður BP dróst saman um 22% í fyrra frá árinu 2006.

Fyrirtækið hefur ekki enn gefið upp hvar uppsagnirnar verða en þær nema um 5% af heildarfjölda starfsmanna.