Heildarviðskipti með hlutabréf námu 12.835 milljónum í nóvembermánuði sem eru 583 milljónir á dag. Þetta er 51% aukning á milli ára og 43% aukning frá síðasta mánuði.

Viðskipti voru mest með hlutabréf Icelandair Group eða 6.752 milljónir, viðskipti með Haga námu 2.542 milljónum og með Haga 1.822 milljónum.

Heildarviðskipti með skuldabréf námu 176 milljörðum í nóvember sem er 8 milljarða velta á dag. Þetta er lækkun um 40% en í nóvember á síðasta ár nam veltan 13,3 milljörðum á dag. Hækkunin milli mánaða á þessu ári var aftur á móti 56%.

Þetta kemur fram í mánaðarlegu uppgjöri NASDAQ OMX þar sem farið er yfir helstu atriði úr viðskiptayfirliti.