Í dag 15. desember 2005 var uppgjör vegna innlausnar á kaupréttarsamningum Dagsbrúnar hf. (Og Vodafone) vegna fjórða ársfjórðungs 2005.

Félagið afgreiðir innlausn kaupréttarsamninga fjórum sinnum á ári. Alls voru 52 kaupréttir innleystir á tímabilinu. Innlausnarfjárhæð var kr. 8.809.749 kr.að nafnverði og kr.21.282.392 kr. að kaupverði. Kaupréttargengi skv. samningum er á bilinu 1,0 - 3,0 á hvern hlut nafnverðs.

Fyrirvari er gerður um að endanleg afstemming innlausnar hefur ekki átt sér stað og ekki er útséð með að allir kaupréttarhafar greiði innlausnarfjárhæðina á gjalddaga. Verði breytingar á innlausninni verður slíkt tilkynnt sérstaklega.