Tap til lækkunar á eigin fé Líftæknisjóðsins hf. var 51.7 millj.kr. samanborið við 13.7 millj.kr. á fyrsta ársfjórðung 2005. Innleyst tap uppgjörstímabilsins er 15.4 samanborið við 4.7 millj.kr. tap í uppgjöri fyrsta ársfjórðungs 2005. Óinnleyst gengistap 36.3 millj.kr. samanborið við 8.9 millj.kr. tap á fyrsta ársfjórðungi 2005.

Heildareignir sjóðsins í lok uppgjörstímabilsins eru 420 millj.kr. Eigið fé sjóðsins er 272.4 millj.kr. og hefur lækkað úr 310.4 millj.kr. í lok fyrsta ársfjórðungs 2005. Handbært fé lækkar um 4.9 millj.kr. og er 478 þús.kr. í lok uppgjörstímabilsins.