Talsvert aukin sókn hefur verið í leiguhúsnæði undanfarið. Sést það á því að aukning hefur verið í fjölda þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði.

Í júlí var þinglýstum 1.033 slíkum leigusamningum á landinu öllu og er það 53% aukning frá sama mánuði í fyrra. Að sögn Svans Guðmundssonar, formanns Félags leigusala, er ánægjulegt að það séu komnar fram upplýsingar um þennan markað.

Í Morgunkorni Íslandsbanka var vakin athygli á að það sem af er ári hefur 6.218 leigusamningum með íbúðarhúsnæði verið þinglýst sem er 37% aukning frá sama tímabili í fyrra. Kemur þetta fram í gögnum sem Fasteignaskrá Íslands hefur tekið saman og birti í gær. Svanur sagði að virkur leigumarkaður gæti komið sem viðbót við þau félagslegu úrræði sem eru í gildi.

Skýrist af efnahagsástandinu

Aukin sókn í leiguhúsnæði skýrist án efa af efnahagsástandinu segir greingardeild Íslandsbanka. Sala íbúðarhúsnæðis hefur verið erfið undanfarið. Veltan á íbúðamarkaðinum hefur verið lítil og verð lækkandi. Í slíku ástandi velja eflaust margir frekar að leigja út íbúðir sínar fremur en að láta þær standa auðar.

Á móti eru kaupendur fáir enda efnahagur heimila skaddaður af kaupmáttar- og eignarýrnun síðustu mánaða. Væntingar eru um frekari lækkun íbúðahúsnæði og vilja margir eflaust forðast að láta eigið fé sitt undir í íbúðarkaupum við slíkar aðstæður.

Fleiri velja því að leggja og hefur spurn eftir slíku húsnæði þannig farið vaxandi þrátt fyrir að stór hluti erlendra aðila sem hér var umfangsmikill á leigumarkaði fyrir hrunið í fyrra sé nú fluttur erlendis segir í Morgunkorninu.