Við lok markaða á föstudag nam gengi hlutabréfa í Icelandair Group 3,85 á hvern hlut. Það þýðir að gengi þeirra bréfa sem seld voru í hlutafjárútboði félagsins fyrir jól hefur hækkað um 54% en í útboðinu var hver hlutur seldur á genginu 2,5.

Bréfin sem seld voru í útboðinu voru tekin til viðskipta á mánudaginn fyrir viku. Markaðsgengi félagsins var þá 3,1 þannig að hafi einhver selt bréfin sem hann keypti í útboðinu strax á fyrsta degi hefur viðkomandi þegar hagnast um 24%.

Síðan þá hafa bréfin aftur hækkað um rúm 20% en ávöxtun bréfanna sem keypt voru í útboðinu er sem fyrr segir þegar orðin 54%.