Samkvæmt nýrri könnun sem Gallup gerði fyrir markaðsstofuna Icelandic Lamb í nóvember og desember 2017, borðar rúmur helmingur erlendra ferðamanna íslenskt lambakjöt.

50% borða lambakjöt á veitingastöðum en 13% borða lambakjöt sem keypt er í búð. Nokkur skörun er á milli þessara hópa en samtals borða 54% þeirra erlendu ferðamanna sem koma til Íslands einhvern tíma lambakjöt í ferðinni. Líkurnar aukast eftir því sem þeir dvelja lengur á landinu.

Eins og Viðskiptablaðið hefur greint frá , sagði Þórarinn Ævarsson framkvæmdastjóri IKEA, sem seldi 84 þúsund lambakjötsskammta á síðasta ári, að ef hægt væri að fá 10% ferðamanna til að éta lambakjöt myndi umframframleiðslan hverfa fljótt ofan í þá.

Markaðsstofan Icelandic Lamb sem rekur öfluga markaðsherferð til að kynna íslenskar sauðfjárafurðir fyrir erlendum ferðamönnum að því er segir í fréttatilkynningu sem berst daginn eftir að fjallað er um ummæli Þórarins.

Hluti hennar er netherferð þar sem um myndböndum og öðru efni er dreift á samfélagsmiðlum. Icelandic Lamb er í samstarfi við um 110 veitingastaði og sérverslanir sem setja lambakjöt í öndvegi.

27% erlendra ferðamanna þekkir merkið

Öll markaðssetningin er undir sérstöku merki Icelandic Lamb. Gallup kannaði þekkingu erlendra ferðamanna á merkinu. Alls þekktu 27% svarenda merkið. Af þeim sögðust 48% hafa mjög jákvætt viðhorf til þess. 25% sögðust hafa nokkuð jákvætt viðhorf en 26% hvorki jákvætt né neikvætt viðhorf gagnvart merkinu.

Svavar Halldórsson, framkvæmdastjóri Icelandic Lamb, segir þessar niðurstöður hafa komið ánægjulega á óvart. „Við fengum Gallup til að gera þessa könnun til að mæla árangurinn af okkar vinnu. Við vorum að vona að þeir sem þekktu merkið yrðu ekki færri en 10% ferðamanna,“ segir Svavar.

„Að 27% skuli þekkja er framar öllum okkar vonum. Svo er líka sérstaklega ánægjulegt hversu jákvæðir ferðamennirnir eru gagnvart því. Þetta er mikil hvatning fyrir okkur að halda áfram og gera enn betur á næstu misserum.“

Um Icelandic lamb

Markaðsstofan Icelandic lamb er í eigu Markaðsráðs kindakjöts sem er samstarfsvettvangur Landssamtaka sauðfjárbænda, Landssamtaka sláturleyfishafa og Bændasamtaka Íslands. Markaðsstofan var sérstaklega stofnuð til að framkvæma verkefnið Aukið virði sauðfjárafurða samkvæmt 10. gr. samnings um starfsskilyrði sauðfjárræktarinnar frá 19. febrúar 2016 og sérstökum samningi þar um við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið. Verkefnið er til 10 ára. Tilgangurinn með því er að auka vitund erlendra ferðamanna um íslenskar sauðfjárafurðir og vinna að sérstökum markaðssetningarverkefnum á kröfuhörðum mörkuðum erlendis.