Paula Januszkiewicz, þekktur öryggissérfræðingur og fyrirlesari, mun halda erindi á öryggisráðstefnu Origo næstkomandi miðvikudag, 30. nóvember. Erindi hennar ber yfirskriftina: Best Teacher is Last Mistake - Top Things You Can Do to Improve your Incident Response Plan.

„Ég mun lýsa raunverulegum tölvuárásum og ræða til hvaða varna er hægt að grípa, því staðreyndin er sú að 54% fyrirtækja lentu í einni eða fleiri árásum síðustu 12 mánuði og því á þessi boðskapur erindi til allra fyrirtækja,“ segir Paula, sem er stofnandi og forstjóri netöryggisfyrirtækisins CQURE.

Hún bendir á þá hættu að fyrirtæki geti lenti í því að skrár þeirra verði dulkóðaðar, gagnagrunnum breytt, aðgangi lokað og reikningum læst. Líklega sé einungis tímaspursmál hvenær fyrirtæki sem hafa hingað til sloppið verða fyrir netárás.

Árásir gerast hratt

„Árásir gerast hratt og eru víðtækari en áður, því um það bil 83% tölvuþrjóta þurfa innan við 24 klst. eftir að hafa náð yfirráðum yfir fyrstu tölvu, til að taka yfir réttindi, eyða gögnum, dulkóða öll kerfi og ná algjörri stjórn á tækniumhverfi fyrirtækisins.“

Paula nefnir að mikilvægt sé að bregðast hratt við árásum því það hjálpar fyrirtækjum að draga úr tapi sínu og endurbyggja þjónustu og ferla. Það er því sérlega mikilvægt fyrir öll fyrirtæki að hafa skiljanlega og vel æfða viðbragðsáætlun til reiðu fyrir mismunandi alvarleg öryggisatvik og hvernig höndla á ógn strax eftir að hún hefur uppgötvast.

„Ég mun leitast við í erindi mínu að lýsa hvernig árásir eiga sér stað og hvernig á að hanna, innleiða og framkvæma skilvirka viðbragðsáætlun. Ég vona að hlustendur fái hagnýtar upplýsingar um hvernig best er að innleiða og framkvæma skipulagaða viðbragðsáætlun,“ segir Paula enn fremur.