Um 54% landsmanna eru jákvæðir gagnvart íslenskum áliðnaði og 22% eru neikvæðir gagnvart iðnaðinum, ef marka má könnun á vegum Capacent. Niðurstöður hennar voru kynntar í dag en Samál, samtök álframleiðenda á Íslandi, tóku formlega til starfa í dag. Um 23% aðspurðra sögðust hlutlausir í afstöðu sinni til áliðnaðar hér á landi.

Í fréttatilkynningu frá Samál segir að markmið þeirra sé að vinna að hagsmunum og framþróun íslensk áliðnaðar og að auka upplýsingagjöf um iðnaðinn.

„Þessi nýju samtök munu leggja sérstaka áherslu á upplýsingagjöf enda hafa skoðanakannanir sýnt að aðeins 25% landsmanna telja sig þekkja vel til áliðnaðar þrátt fyrir alla þá umfjöllun sem hann hefur fengið. Þá hefur það og sýnt sig að afstaða fólks sem býr í nágrenni við álverin er jákvæðari í garð þeirra. Þetta rímar vel við þá stefnu álfyrirtækjanna að vera góðir grannar. Eftir því sem fólk þekkir betur til iðnaðarins, þeim mun jákvæðara er það. Aukin upplýsingagjöf er því stærsta hagsmunamál áliðnaðarins á Íslandi í dag,“ segir Rannveig Rist, stjórnarformaður Samáls í tilkynningu.

Framkvæmdarstjóri Samáls er Þorsteinn Víglundsson. Í tilkynningu segir hann að mikil framþróun hafi átt sér stað í íslenskum álverum hvað umhverfismál varðar. „Íslenski áliðnaðurinn er í dag í fararbroddi á heimsvísu hvað umhverfismál varðar. Þannig er heildarlosun á hvert framleitt tonn hér á landi, að teknu tilliti til losunar vegna raforkuframleiðslu, aðeins um 20% af losuninni sem verður við framleiðslu málmsins í Evrópu. Mikil framþróun hefur átt sér stað í íslenskum álverum hvað umhverfismálin varðar en frá árinu 1990 hefur losun gróðurhúsalofttegunda á hvert framleitt tonn dregist saman um nær 75%. Á árinu 2009 minnkaði losunin á hvert framleitt tonn um 11% frá árinu á undan.“