Íslenska menntatæknifyrirtæki Mussila hefur vaxið hratt, en Jón Gunnar Þórðarson tók við sem framkvæmdastjóri félagsins árið 2020.
„Stuttu eftir að ég tek við kemur heimsfaraldur og í kjölfarið fjórfaldast áskriftartölurnar okkar á einu bretti. Þá kom áskorunin, hvernig ætlum við að halda nýju kúnnunum." Óhætt er að segja að fyrirtækinu hafi tekist það, en vöxturinn tvöfaldaðist á árunum 2020 og 2021.
Menntatæknimarkaðurinn er ört stækkandi markaður. Mussila er á K12 markaðnum innan menntatæknigeirans, sem einblínir á börn á grunnskólaaldri. Markaðurinn er sá stærsti og sá verðmætasti í menntatæknigeiranum. Samkvæmt Holon IQ mun markaðurinn velta 4,1 þúsund milljarði dala ($4.1T) árið 2025. Það jafngildir 543 þúsund milljörðum króna, en Jón segir heimsfaraldurinn hafa hraðað ferlinu gríðarlega.
Jón segir að skólalokanir í faraldrinum hafi opnað á nýjan markað fyrir félagið. „Hingað til höfðum við einungis verið á neytendamarkaði, á App Store og Google Play. Þegar skólar lokuðu fengum við fyrirspurnir hvort við værum með skólaútgáfu af Mussila Music, þar sem kennarar gætu stýrt kennslunni." Jón segir að fyrirtækið hafi strax í kjölfarið þróað slíka útgáfu.
Alþjóðlegt teymi á Íslandi
Sterkir íslenskir fjárfestar hafa stutt við Mussila frá upphafi. Í maí 2021 safnaði Mussila 700 þúsund evrum, eða um 100 milljónum króna, á eistneska fjármögnunartorginu Funderbeam. Þar komu 250 áhugafjárfestar að borðinu, flestir eistneskir. „Nú stefnum við á enn stærri fjármögnun, en við vorum valin í úrslit í Elite 200 í GSV Cup og þar með valin í hóp 200 efnilegustu sprotafyrirtækja í menntatækni í heiminum." Mussila-appið er einnig tilnefnt til þriggja Bett verðlauna sem eru stærstu verðlaunin á sviði menntatækni.
Mussila teymið starfar á Íslandi og inniheldur 10 manns frá fjórum löndum. Þar á meðal eru listamenn, markaðsfræðingar og tölvunarfræðingar. Nýlega tók við stjórn sem inniheldur reynslumikla aðila úr tölvuleikjageiranum. Þar á meðal er Sigurlína Ingvarsdóttir, stjórnarformaður Mussila. Hún stýrði þróun Star Wars Battlefront og framtíðarstefnu EA Sports FIFA knattspyrnutölvuleiksins
„Við útvistum ekki verkefnum annað, heldur gerum allt sjálf. Þannig skapast öll þekkingin í fyrirtækinu sjálfu, sem gerir okkur sterkari til framtíðar." Jón segir menntatækniheiminn lítinn þrátt fyrir mikinn vöxt að undanförnu. „Við erum öll að hjálpast að. Samtölin á milli fyrirtækja í geiranum eru mikil og við höfum fengið hjálp frá stórum fyrirtækjum erlendis.",,
Nánar er fjallað um Mussila í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir Tölublöð , aðrir geta skráð sig í áskrift hér .