Rekstrarniðurstaða A og B hluta ársreiknins Mosfellsbæjar er talsvert betri en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun ársins. Það má helst skýra með auknum tekjum vegna hærri launatekna íbúa, íbúafjölgun og því að verðlag þróaðist hagstæðara en ráð var fyrir gert.

Rekstrarniðurstaða ársins var jákvæð um 560 milljónir en hafði verið áætluð 159 milljónir. Hann er því ríflega 3,5 sinnum meiri en áætlað var. Tekjur ársins námu alls 10.016 milljónum, launakostnaður 4.724 milljónum og annar rekstrar­kostnaður 4.039 milljónum. Framlegð nemur því 1.253 milljónum en að teknu tilliti til fjármagnsliða.

Veltufé frá rekstri er 1.236 milljónir eða rúmlega 12,3% af tekjum. Eigið fé í árslok nam 5.594 milljónum og eiginfjárhlutfall 32,2%. Skuldaviðmið fer lækkandi og er 103,9% sem er vel innan þess 150% hámarks sem kveðið er á um í lögum.

Íbúum fjölgaði um 8% frá fyrra ári

Íbúar Mosfellsbæjar voru 10.560 um síðustu áramót en fjölgunin var um 8% á milli ára sem er meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Mosfellsbær er sjöunda fjölmennasta sveitarfélag landsins og þar störfuðu 656 starfsmenn í 528 stöðugildum í árslok 2017.

Fræðslumál eru langstærsti málaflokkurinn en til hans runnu 3.988 milljónir eða 50% skatttekna. Til félagsþjónustu var veitt 1.477 milljónum og eru þar meðtalin málefni fatlaðs fólks. Íþrótta- og tómstundamál er þriðja stærsta verkefni bæjarins en til þeirra mála var varið um 874 milljónum. Samtals er því 79% skatttekna Mosfellsbæjar varið til fræðslu-, félagsþjónustu, íþrótta- og tómstundamála.