Flugfélagið Play flutti 16.689 farþega í nóvember, samanborið við tæplega 25 þúsund farþega í október síðastliðnum. Sætanýting lækkaði á milli mánaða úr 67,7% í 58,3%. Þetta kemur fram í flutningatölum Play sem birtar voru í dag.

„Þróunin í nóvember var mjög jákvæð þar til ný bylgja kórónuveirunnar skall á hér á landi og í Evrópu um miðjan mánuðinn sem hafði áhrif á eftirspurn. Miðað við síðustu bylgju hefur verið minna um að viðskiptavinir breyti ferðadagsetningu sinni eða afbóki ferð sína. Áhrif þessarar bylgju birtust helst í bókunum til skemmri tíma þar sem viðskiptavinir bókuðu helgarferðir með stuttum fyrirvara í mun minna mæli en áður, sem hafði nokkur áhrif á sætanýtingu í mánuðinum. Á sama tíma hefur bókunarstaða til lengri tíma verið sterk,“ segir í tilkynningunni.

Flugfélagið segir að miðað við krefjandi umhverfi á tímum heimsfaraldurs og að eftirspurn eftir flugferðum er almennt minni í nóvember þá verði staðan að teljast nokkuð góð. Með hærra hlutfalli bólusettra á mörkuðum Play ríkir nokkur bjartsýni með næstu mánuði þó að óvissunni um stöðu faraldursins sé ekki lokið.

Birgir Jónsson, forstjóri Play:

„Sætanýtingin í nóvember var vel ásættanleg með tilliti til neikvæðra áhrifa kórónuveirufaraldursins og nýja ómíkrón afbrigðisins sem skapar óvissu til skamms tíma. Auk þess er nóvember alla jafna erfiður mánuður í flugrekstri. Það er því hvetjandi að sjá að nóvember er okkar næst besti mánuður það sem af er ári með hliðsjón af nýtingu okkar.

Það sem gefur einnig tilefni til bjartsýni er hve stöðugur vöxtur er í bókunum hjá okkur eftir því sem vörumerki okkar verður þekktara á mörkuðum Play. Það vegur upp á móti sveiflum á íslenska markaðinum.

Við vinnum að fjölgun áfangastaða okkar næsta vor en stóra verkefnið er viðbót nokkurra borga í Norður Ameríku við leiðarkerfi okkar sem kynnt verður á næstunni. Með því að breyta yfir í tengiflugsleiðakerfi (e. hub-and-spoke) aukum við aðgengi að farþegum og tekjum sem styrkir undirstöður okkar og ver okkur gagnvart sveiflum á hinum kvika íslenska markaði.

Nýjustu vendingar í kórónuveirufaraldrinum hafa engin áhrif á langtímaáætlanir okkar og ég er mjög ánægður með frammistöðu fyrirtækisins og hlýlegar viðtökur viðskiptavina okkar. Ég fylgist stoltur með metnaði og fagmennsku samstarfsfólks míns hjá PLAY og er mjög bjartsýnn á framhaldið.

Tuttugu og þrír áfangastaðir í Evrópu

Í nóvember bætti Play við fjórum áfangastöðum í Evrópu við áætlun sína næsta sumar, Lissabon í Portúgal, Prag í Tékklandi, Bologna á Ítalíu og Stuttgart í Þýskalandi. Í desember bætti Play þremur áfangastöðum í Evrópu við áætlun sína fyrir næsta sumar, Dyflinn á Írlandi, Madríd á Spáni og Brussel í Belgíu. Með þessari viðbót við leiðakerfi PLAY eru áfangastaðir félagsins í Evrópu orðnir 23 talsins. Þá mun PLAY hefja áætlunarflug til austurstrandar Bandaríkjanna næsta vor.